| Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library |
| Sant’Ignazio di Antiochia Bréf til Magnesíumanna IntraText CT - Text |
|
|
|
9. Við höfum séð hvernig fyrrverandi fylgismenn hins gamla siðar hafa síðan öðlast nýja von. Því hafa þeir hætt að halda sabbatsdag og miða líf sitt þess í stað við Drottins dag (daginn sem fyrstu geislar lífs okkar komu upp, þökk sé honum og dauða hans. Sá dauði, þótt sumir hafni honum, er einmitt sá leyndardómur sem hefur fengið okkur til að trúa og þola þrengingar til að sýna að við erum verðugir nemar Jesú Krists, okkar eina kennara). Með þetta í huga hvernig ætti það þá að vera okkur mögulegt að útiloka hann frá lífi okkar þegar jafnvel spámenn hins gamla tíma voru sjálfir nemendur hans í Andanum og litu fram á við til hans sem kennara síns? Þetta er raunar einmitt ástæða þess að hann, sem þeir vissulega biðu eftir, heimsótti þá og reisti þá upp frá dauðum.5
|
5) "Í andanum fór hann einnig og predikaði fyrir öndunum í varðhaldi," segir í fyrsta bréfi heilags Péturs postula (3.19, sjá einnig 4.6). Sú skoðun var almenn að þegar Kristur steig niður "til heljar" (eða limbus patrum) hafi hann fundið fyrir hina helgu menn Gamla testamentisins og boðað þeim þar fagnaðarerindið og reist þá síðan til lífsins á himnum. |
Table of Contents | Words: Alphabetical - Frequency - Inverse - Length - Statistics | Help | IntraText Library |
Best viewed with any browser at 800x600 or 768x1024 on Tablet PC IntraText® (V89) - Some rights reserved by EuloTech SRL - 1996-2007. Content in this page is licensed under a Creative Commons License |